Tuesday, January 24, 2006

 

8 ára

Þá er stóra stelpan okkar orðin átta ára (OMG)! Húsmóðurinni finnst þó eins og hún sé nýfædd. Ótrúlegt hvað allt líður hratt á gervihnattaöld. Fyrr en varir verður maður orðin gamlingi á grafarbakkanum - nei nei - nú er frúin aðeins komin fram úr sjálfri sér.

Um helgina voru veisluhöld mikil í kotinu. Stelpupartý á laugardag og fjölskyldan á sunnudag.

Á myndinni eru systurnar með frændsystkinum (þeim sem á Íslandi búa).

Innlegg:
Jú, hún er landsfræg fyrir sérlega húsmóðurtakta. Á líka alltaf eitthvað gott í skápunum. Annað en húsmóðirin í Vesturbæ sem er algerlega búin að missa stjórn á heimilinu.

Spurning um að fá að koma í HÚS103 á Austurgötuna. Viss um að það kæmust færri að en vilja.
 
Sammála síðustu ræðumönnum hér og bæti við! Til lukku með að hafa verið móðir í 8 ár! það er viss áfangi ;)
 
Post a Comment



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?