Thursday, September 04, 2008

 

Má ég kynna......

..... nýjasti fjölskyldumeðliminn: NN Einarsdóttur sem fæddist í gær, 3. september 2008 kl. 16:10 (2 dögum fyrir áætlaðan fæðingardag og 8 klst. fyrir verkfall ljósmæðra). Allt gekk vel í fæðingunni þannig að það kom ekki að sök að eiga þess ekki kost að gista í Hreiðrinu. Fínt að komast heim og leyfa stelpunum að sjá nýju systur sína.
Litla daman er spikfeit og bólgin eins og sést á þessum myndum. Hún var 4.340 gr. (sem eru rúmar seytján merkur) og 52 cm. Hún tekur brjóst, gerir í bleyju, orgar og sefur eins og til er ætlast.


Kærar þakkir fyrir hamingjuóskirnar allir - afsakið frúna fyrir að hafa ekki svarað sms-skeytum.
Posted by Picasa

Innlegg:
This comment has been removed by the author.
 
Elsku vinir - til hamingju með litla guðdóminn. Hún er æði.
Þið eruð ekkert smá rík, þrjár stelpur! Hverjum er hún lík?
xxx
Gagga og co
 
Til hamingju með stelpuna

Ástarkveðjur og hamingjuóskir frá langafa og langömmu í köben
 
Innilega til hamingju enn og aftur með snúlluna. Alger rófa, hlakka til að hitta hana.

Nú vandast málið...IKEA fjölskyldan þarf að breyta um nafn ;)

Vonandi að allt gangi vel þrátt fyrir verkfallsaðgerðir. Verð svo í sambandi þegar um hægist og fæ að kíkja til ykkar

Gugga og co
 
Kæra fjölskylda

Innilega til hamingju með nýjasta meðliminn, hún er algerlega fullkomin.

kv.Birna, Toggi og Katrín Klara
 
Post a Comment



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?